Þá er komið að því að skrifa eitthvað um hvað er um að vera hjá
okkur í Wartburg. Máni er í Skotlandi og við erum ennþá hérna á
Egilsstöðum. Skruppum í húsnæðið í gærkvöldi og meistari
Súkli kom með helvíti magnað riff, sem við gerðum úr lagi. Það er
s.s. ennþá í vinnslu. Máni er tók með sér 2 lög til að klára... og
erum við ennþá að bíða eftir því. Þau verða sett inn á síðurnar hjá
okkur þegar þau verða KLÁR !!!
Heyrir þú það Máni !!!!!!!!!
Magni er að brillera út í hinum stóra heimi. Haltu því bara
áfram !! Þú veist að það
má alltaf setjast að samningarborðinu þegar þú færð leið á að
fronta Supernova!
Effekta talvan mín er til sölu ef einhver vill
kaupa. Þetta er KORG talva. Ax3000 að mig minnir...
Lítið notuð og fæst á sanngjörnu verði.
Skrapp á FISKIDAGINN MIKLA á Dalvík..... Það kom mér á
óvart hversu góð bönd eru frá þessu svæði... Brain Police...
Nevolution.... Hundur í óskilum... Hvanndals bræður !!!!!!!!
Horfði á nokkur bönd sem voru að spila þarna. Nevolution voru
þéttari en andskotinn, Brain Police voru mjööög góðir en það
vantaði "stage performansið".... Kanski það það var kuldinn sem
hindraði góða sýningu frá þeim ( við könnumst við það... Kalt á
Road Rage tónleikunum) Svo var eitt band sem hétu The Turn
offs, þau komu rosalega á óvart, skemmtilegt band það.
Jæja. Farinn að sofa, maður er orðinn svo asskoti gamall
!! Góða nótt !
HÉRNA ER SVO ÉG OG NÝJASTI MEÐLIMUR WARTBURGAR.
